Stéttarfélag lögfræðinga vinnur að bættum kjörum og gætir hagsmuna félagsfólks í kjara- og réttindamálum. Félagið kemur fram fyrir hönd félagsfólks gagnvart launagreiðendum og öðrum og upplýsir það um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Þjónustuskrifstofan er til húsa í Borgartúni 27. Skrifstofan er opin mán-fimmt frá klukkan 9-15 og á föstudögum til 13. Síminn er 415 1650.
Á skrifstofunni, sem rekin er með tveimur öðrum stéttarfélögum, er félagsfólki veitt margs konar þjónusta og upplýsingar.
Meðal verkefna hennar er að aðstoða:

Félagsaðild er heimil þeim sem lokið hafa að lágmarki BA gráðu í lögfræði frá viðurkenndum háskóla. Félagsaðild er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi. Háskólanemar sem lokið hafa tveimur námsárum af háskólanámi í lögfræði geta orðið félagar með takmörkuðum réttindum og skyldum.


Stéttarfélag lögfræðinga í þeirri mynd sem það er í dag má rekja til ársins 1973 þegar samþykkt voru lög nr. 46/1973 um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Skipulögð starfsemi utan um hagsmuna- og kjarabaráttu lögfræðinga á Íslandi á sér þó lengri sögu. Lögfræðingafélag Íslands var fyrsta allsherjarfélag lögfræðinga á Íslandi sem gætti hagsmuna lögfræði stéttarinnar
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Hún ber ábyrgð á fjármálum og rekstri, gætir þess að lögum og samþykktum félagsins sé framfylgt og fer með umboð félagsins til kjarasamninga.
Stjórn er skipuð fimm fullgildum félögum og tveimur varamönnum. Formaður er kosinn sérstaklega. Kjörtímabil stjórnar er tvö ár: annað hvert ár eru kosnir formaður og tveir stjórnarmenn og hitt árið tveir stjórnarmenn. Tveir varamenn eru kosnir til eins árs.

Í lögum félagsins er meðal annars kveðið á um hlutverk Stéttarfélags lögfræðinga, reglur varðandi félagsaðild og ábyrgð stjórnar auk lýsinga á starfsemi félagsins.
Auk laganna má benda á samþykktir félagsins, m.a.

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og skal haldinn fyrir lok apríl ár hvert.
Boðað skal til fundarins með 14 daga fyrirvara á vef félagsins og með tölvupósti til félagsfólks. Stjórn ákveður hvort fundurinn verði staðfundur, fjarfundur eða hvort tveggja og skal fundarform koma fram í fundarboði. Stjórn getur farið fram á að félagsfólk forskrái mætingu.
Allt efni sem félagið sendir frá sér skal vera samkvæmt hönnunarstaðli.
Í hönnunarstaðli er að sjá reglur og útfærslur á notkun merkis, leturgerðir og reglur um litaval í kynningarefni og merkingum. Þar eru merki og aðrir grafískir þættir á vektoraformi sem hægt er að sækja ef skjalið er opnað í myndvinnsluforriti.