SL vinnur að kjörum og réttindum lögfræðinga. Félagsfólk getur leitað til félagsins með spurningar um kjarasamninga, ráðningarkjör og réttindi í starfi. Hér finnur þú helstu kosti aðildar og leiðir að þjónustunni.
SL gerir kjarasamninga fyrir hönd félagsfólks og veitir leiðbeiningar um túlkun þeirra og gildissvið. Algengar spurningar snúa að launaröðun, launahækkunum, orlofi og veikindarétti.
Félagar geta leitað til okkar varðandi undirbúning starfsþróunar- og launaviðtala. Það er mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir slík viðtöl, enda eru þau lykilþáttur í starfsþróun og starfsánægju.
Við getum líka veitt ráðgjöf við gerð ráðningarsamninga og aðstoðað okkar félaga við að tryggja að hagsmuna þeirra sé gætt.
Ef til uppsagnar kemur veitum við okkar félögum ráðgjöf varðandi réttindi þeirra og liðsinnum þeim við að leita réttar síns ef þess gerist þörf.

Stéttarfélag lögfræðinga er aðili að BHM og félagar okkar geta sótt um ýmsa styrki úr sjóðum sem þjónustaðir eru af BHM:
Sótt er um alla ofangreinda styrki gegnum Mínar síður BHM
Þjónustuver BHM veitir félagsmönnum aðildarfélaga upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr sjóðum bandalagsins, umsókna um orlofskosti o.fl.
Hér á vefnum er umsóknareyðublað fyrir aðild að SL, sem verðandi félagar geta fyllt út og sent okkur.
Ef þú hefur spurningar varðandi mögulega aðild, til dæmis hvort að þitt starf falli undir aðildarskilgreiningar félagsins er einfaldast að senda fyrirspurn eða óska eftir símtali.
Ef þú, sem félagi, hefur áhuga á að taka virkari þátt í starfsemi stéttarfélagsins bendum við á upplýsingar um SL, þar er meðal annars að finna upplýsingar um aðalfundi félagsins og stjórnarmeðlimi sem geta veitt upplýsingar um leiðir til að gefa kost á sér í ábyrgðarstöður félagsins.