Stéttarfélag lögfræðinga gerir kjara- og réttindasamninga fyrir hönd fagstéttar lögfræðinga. Þessir miðlægu samningar eru sá grunnur sem mögulegir stofnana- eða fyrirtækjasamningar byggja síðan ofan á, eftir því sem við á hjá hverjum vinnustað.
Hér er að finna samninga Stéttarfélags lögfræðinga við sína viðsemjendur, ásamt launatöflum og öðru aukaefni.
Sérfræðingar á skrifstofu félagsins aðstoða félagsfólk við eftirfylgni og túlkun kjarasamninga og geta svarað spurningum varðandi kjara- og réttindamál. Skrifstofan aðstoðar einnig við lausn ágreiningsmála sem varða framkvæmd og túlkun kjarasamninga. Þar með talið er aðstoð við útreikninga á launum og innheimtu ef þörf krefur.