Hlutverk BHM er að:
- Efla aðildarfélögin og stuðla að gagnkvæmum stuðningi og samstöðu milli þeirra.
- Efla þekkingu félagsmanna á kjara- og réttindamálum.
- Móta sameignlega stefnu félaganna í hagsmunamálum þeirra.
- Semja um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál skv. umboði.
- Aðstoða félögin við gerð kjarasamninga.
- Gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum og löggjafarvaldi.
- Hafa frumkvæði að umræðu um háskólamenntun og stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði.
- Vinna reglulega greiningu á launaþróun á vinnumarkaði til undirbúnings kjaraviðræðna.
- Eiga samstarf við systursamtök háskólamenntaðra og önnur sambærileg samtök erlendis.
- Annast rekstur og umsýslu sameiginlegra sjóða aðildarfélaganna samkvæmt þjónustusamningum.