Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. Félagsfólk í Stéttarfélagi lögfræðinga hefur aðgang að þjónustu VIRK starfsendurhæfingarsjóðs.
Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings.
Ef þú vilt kanna hvort starfsendurhæfing hjá VIRK henti þér er fyrsta skrefið að panta tíma hjá lækni. Þið farið saman yfir stöðu þína og hvort starfsendurhæfing sé viðeigandi á þessum tímapunkti.
Ef læknirinn telur starfsendurhæfingu hjá VIRK viðeigandi sendir hann beiðni til VIRK.
- Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.
- Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.
- Að geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni og fylgja þeirri áætlun sem þar er sett fram.
Ef þú ert enn með spurningar sem ekki er svarað hér fyrir ofan hvetjum við þig til að hafa samband við skrifstofu félagsins
Þú getur sent inn fyrirspurn, til dæmis varðandi almennar spurningar um vinnurétt og kjaramál.
Þú getur líka stofnað formlega þjónustubeiðni sem fer sjálfkrafa inn í málaskrár kerfi okkar, til dæmis vegna umfangsmikilla eða viðkvæmra erinda
Loks má bóka símtal við sérfræðing, ef þú heldur að það eigi betur við.
Þjónustuskrifstofa félagsins er til húsa í Borgartúni 27. Hún er opin alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-16. Síminn er 415 1650.