Hér finnur þú upplýsingar um hlutverk trúnaðarmanna, kosningar, fræðslu og ítarefni. Hafðu samband við SL ef þú hefur spurningar um trúnaðarmenn á þínum vinnustað.
Trúnaðarmaður er félagsmaður í stéttarfélagi sem hefur verið tilnefndur af starfsmönnum eða félaginu sjálfu sem fulltrúi þess á vinnustað.
Trúnaðarmaður er tengiliður milli félagsmanna á vinnustað og vinnuveitanda annars vegar og milli félagsmanna og stéttarfélags hins vegar. Trúnaðarmaður stendur ekki einn og eru stjórn og starfsmenn stéttarfélags honum til aðstoðar við að leysa úr þeim erindum sem upp kunna að koma og heyra undir starfssvið stéttarfélagsins.
Meðal helstu hlutverka trúnaðarmanna eru að:
Almennar reglur um kosningu trúnaðarmanna má finna á vef BHM. Almennt gildir að á hverri vinnustöð þar sem a.m.k. 5 félagsmenn starfa er heimilt að kjósa einn trúnaðarmann. Á vinnustöð þar sem 50 félagsmenn eða fleiri starfa má kjósa tvo trúnaðarmenn. Mikilvægt er að hafa í huga að eftir tvö ár rennur kjörtímabil trúnaðarmanns út. Ef trúnaðarmaður er ekki endurkjörinn missir hann þá vernd og réttindi sem hann annars nýtur samkvæmt lögum.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um kosningu trúnaðarmanna hjá Stéttarfélagi lögfræðinga með því að senda fyrirspurn á skrifstofu félagsins.
Vernd trúnaðarmanna gegn uppsögn af hálfu atvinnurekanda er hornsteinn þeirra reglna sem gilda um trúnaðarmenn. Verndin er til að tryggja að trúnaðarmaður geti sinnt trúnaðarstörfum án þess að eiga á hættu að missa vinnuna vegna þeirra.
Stjórnendur mega því ekki segja trúnaðarmanni upp fyrir að vekja athygli á óþægilegum málum fyrir hönd samstarfsfólks eða benda á kjarasamningsbrot fyrir hönd stéttarfélags. Brjóti trúnaðarmaður hins vegar af sér í daglegum störfum eða vanræki hann starf sitt, er hann í sömu stöðu gagnvart atvinnurekanda og aðrir á vinnustaðnum.
Félagsdómur hefur fjallað um vernd trúnaðarmanns í starfi í dómum sínum og þannig hafa mótast ákveðnar reglur um vernd trúnaðarmanna fyrir uppsögn.
Trúnaðarmenn hjá ríki og sveitarfélögum
Samhljóða ákvæði er einnig í kjarasamningi við sveitarfélög frá 2011.
Trúnaðarmenn sem kjörnir eru í samninganefnd fá leyfi til að sinna því verkefni án skerðingar á reglulegum launum. Trúnaðarmanni ber þó að tilkynna yfirmanni um slíkar fjarvistir með eðlilegum fyrirvara.
Trúnaðarmenn á almennum vinnumarkaði
Trúnaðarmönnum er heimilt að sinna á vinnutíma trúnaðarstörfum sem honum eru falin af stéttarfélagi eða samstarfsmanni án þess að laun þeirra skerðist, að því gefnu að trúnaðarmaður hafi samráð við vinnuveitanda um störf þessi.
Bandalag háskólamanna býður trúnaðarmönnum upp á rafræn námskeið á Mínum síðum, undir flipanum Viðburðir og námskeið.
Þar er að finna stutt myndbönd (10-30 mín) eftir flokkum. Myndböndin fjalla um hlutverk trúnaðarmanna. Með þeim fylgja ítarefni og gagnlegir tenglar.
Trúnaðarmönnum er einnig bent á að fylgjast reglulega með viðburðum og fræðslu hjá BHM, bæði fyrir sjálfa sig og til að miðla til annarra á vinnustaðnum eftir þörfum.
Nánari skilgreiningar og réttindaákvæði um trúnaðarmenn má ýmist finna í kjarasamningum, samkomulagi heildarsamtaka um trúnaðarmenn eða í lögum um opinbera starfsmenn.
Opinberir starfsmenn (ríki og sveitarfélög)
Eftirtaldir teljast til trúnaðarmanna samkvæmt samkomulagi um trúnaðarmenn:
Ofantaldir aðilar njóta þeirra réttinda og verndar sem lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 gera ráð fyrir. Þá er að finna í ofangreindu samkomulagi rétt trúnaðarmanna til fjarveru vegna trúnaðarstarfa.
Starfsmenn á almennum vinnumarkaði
Í kjarasamningi aðildarfélaga BHM og Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2011 var bætt við sérstökum kafla um trúnaðarmenn. Að öðru leyti er ákvæði um trúnaðarmenn á almennum vinnumarkaði að finna í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938.
Ákvæði um trúnaðarmenn í samningum og lögum
Hefur þú spurningar um trúnaðarmenn eða viltu vita hvert þú getur leitað á þínum vinnustað? Sendu fyrirspurn til SL eða óskaðu eftir símtali.