Starfar þú sjálfstætt sem lögfræðingur eða ert að íhuga eigin rekstur? Hér finnur þú leið að upplýsingum fyrir sjálfstætt starfandi og getur sent SL fyrirspurn um aðild og þjónustu félagsins.
Ákveðin aukavinna fylgir því að vera sjálfstætt starfandi. Aðilar verða sjálfir að standa skil á ýmsum sköttum og gjöldum, svo sem lífeyrissjóðsgreiðslum og tryggingum, ásamt því að senda viðeigandi reikninga og gögn inn til stofnana.
BHM hefur tekið saman ítarlegt safn upplýsinga fyrir sjálfstætt starfandi og við mælum með því að allir sem þegar starfa sjálfstætt eða eru að velta því fyrir sér kynni sér þær upplýsingar vel.
Hefur þú spurningar um aðild eða þjónustu SL fyrir sjálfstætt starfandi? Sendu fyrirspurn eða óskaðu eftir símtali.