Örar breytingar á vinnuumhverfi og verkefnum gera símenntun stöðugt mikilvægari, fyrir starfsánægju, öryggi og umbun. Bandalag háskólamanna rekur tvo sjóði sem tengjast starfs- og endurmenntun og félagar í Stéttarfélagi lögfræðinga geta sótt í.
Starfsmenntunarsjóður BHM og Starfsþróunarsetur háskólamanna veita styrki til náms og starfsþróunar. Þótt ýmis verkefni geti verið styrkhæf hjá báðum eru sjóðirnir með ólíkar reglur um aðild, ávinnslu og styrkveitingar.
Réttindi þín ráðast meðal annars af því í hvorn sjóðinn vinnuveitandi þinn greiðir iðgjöld. Aðild að Stéttarfélagi lögfræðinga ein og sér segir því ekki til um hvaða styrki þú getur sótt.
Starfsmenntunarsjóður styrkir sí- og endurmenntun sem tengist því starfi sem greitt er í sjóðinn vegna. Þar geta meðal annars fallið undir:
Almennt þarf að hafa verið greitt í sjóðinn vegna þín í samtals sex mánuði, þar af þrjá samfellda, til að öðlast rétt til styrks. Um undantekningar og viðhald réttinda fer samkvæmt reglum sjóðsins.
Skoða styrki og reglur Starfsmenntunarsjóðs BHM
Starfsþróunarsetur styrkir verkefni sem efla faglega hæfni og starfsþróun. Þar geta meðal annars fallið undir:
Kynnisferðir og tómstundanámskeið eru ekki styrkt af setrinu.
Aðild byggist á kjarasamningi eða samkomulagi um iðgjaldagreiðslur. Á opinberum vinnumarkaði getur aðild orðið virk þegar iðgjaldagreiðslur hefjast. Á almennum vinnumarkaði þarf almennt að hafa verið greitt í setrið í samtals sex mánuði, þar af þrjá samfellda áður en verkefnið hefst. Aðild þarf að vera orðin virk áður en verkefni sem sótt er um styrk fyrir hefst.
Skoða styrki og reglur Starfsþróunarseturs
Ef þú ert óviss um hvaða sjóður á við eða hvort verkefni sé styrkhæft getur þjónustuver sjóða BHM aðstoðað þig í síma 595 5100 eða á sjodir@bhm.is.
Umsóknum og fylgigögnum er skilað rafrænt á Mínum síðum BHM. Starfsfólk sjóðsins metur umsóknir samkvæmt úthlutunarreglum.
Umsækjendur fá svar um afgreiðslu og upplýsingar um þau gögn sem þurfa að liggja fyrir svo hægt sé að greiða styrkinn.
Starfsmenn Þjónustuvers sjóða BHM veita upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr Starfsmenntunarsjóði.
Sími: 595 5100
Netfang: sjodir@bhm.is
Sótt er um einstaklingsstyrki rafrænt á Mínum síðum BHM. Þar skilar þú upplýsingum um verkefnið og fylgigögnum.
Þú getur einnig kannað styrkhæfi fyrirhugaðs verkefnis með umsókn á Mínum síðum áður en þú skráir þig eða greiðir kostnað.
Starfsmenn Þjónustuvers sjóða BHM veita upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr Starfsþróunarsetri háskólamanna.
Sími: 595 5100
Netfang: sjodir@bhm.is
Framkvæmdastjóri Starfsþróunarseturs háskólamanna er Kristín Jónsdóttir Njarðvík - kristin@starfsthroun.is