Aðild að stéttarfélagi er ávísun á öryggi. Félagsfólk nýtir samtakamátt sinn til að knýja á um bestu mögulegu kjör sín og réttindi. Gott stéttarfélag veitir persónulega ráðgjöf og þjónustu, allt frá ráðningarsamningi til starfsloka. Það opnar einnig aðgengi að margskonar fríðindum og fjárhagslegum stuðningi og er traustur bakhjarl þegar á þarf að halda.
Stéttarfélag lögfræðinga gerir kjarasamninga fyrir hönd síns félagsfólks. Einnig eru gerðir stofnana- og fyrirtækjasamningar og veitt ráðgjöf við gerð ráðningasamninga. Þannig fylgir stéttarfélagið því eftir að kjör og réttindi séu alltaf í takt við það besta sem völ er á.
Með aðild að félaginu opnast möguleikar á margvíslegum styrkjum. Þar skiptir þátttaka félagsins í BHM miklu máli. Sjúkra- og styrktarsjóðir veita fjölbreytta styrki og öflugt öryggisnet en starfsmenntasjóðirnir styðja við sí- og endurmenntun.
Stéttarfélag lögfræðinga veitir félagsfólki sínu aðgang án endurgjalds að alls kyns fræðslu, fyrirlestrum og námsefni sem jafnt getur nýst í leik og starfi. Oft er efnið rafrænt og hægt að lesa, horfa og hlusta við hentugleika.
Við kappkostum að svara öllum fyrirspurnum sem tengjast starfsemi félagsins eða kjörum þínum og réttindum. Hægt er að senda okkur fyrirspurn með því að fylla út í formið hér fyrir neðan og við svörum við fyrsta tækifæri.
Einnig er í boði að stofna formlega þjónustubeiðni sem fer sjálfkrafa inn í málaskrárkerfi okkar. Sú leið gæti átt betur við ef um er að ræða umfangsmikið eða viðkvæmt erindi.
Við bendum líka á þann möguleika að bóka símtal við sérfræðing, ef þú heldur að það eigi betur við.
Til þess að geta svarað innsendum fyrirspurnum biðjum við um nafn og að lágmarki annað hvort netfang eða símanúmer. Upplýsingar um innsendar fyrirspurnir eru vistaðar í gagnagrunni félagsins.
Í persónuverndarstefnu félagsins er að finna nánari lýsingu á því hvernig við vinnum með persónuupplýsingar af þessu tagi.