Með aðild að Orlofssjóði BHM býður félagið aðgang að spennandi orlofskostum auk afsláttarkjara á flugi og margvíslegri frítengdri afþreyingu.
Orlofssjóður BHM leigir sjóðfélögum orlofshús og íbúðir innanlands. Auk þess er hægt að kaupa flugávísanir, ferðaávísanir og gjafabréf með Icelandair og Erni, útilegu – og veiðikort og ferðaávísanir.
Þá veitir félagsskírteini orlofssjóðsins ýmsa afslætti hjá fyrirtækjum vítt og breitt um landið.
Réttindi í Orlofssjóði BHM byggjast á iðgjaldagreiðslum. Að jafnaði þarf að hafa verið greitt í sjóðinn í þrjá samfellda mánuði til að teljast virkur sjóðfélagi. Um viðhald réttinda og undantekningar gilda reglur sjóðsins.
Orlofshúsum um páska og á sumrin er úthlutað með slembivali úr gildum umsóknum. Umsóknartímabil eru auglýst sérstaklega ár hvert. Um takmarkanir á endurtekinni úthlutun og bókanir á öðrum tímum fer samkvæmt gildandi verklagsreglum.
Á orlofsvef BHM getur þú skoðað orlofskosti, sótt um úthlutun og bókað lausa gistingu.
Starfsmenn Þjónustuvers sjóða BHM veita upplýsingar og aðstoð vegna orlofssjóðs BHM
Sími: 595 5100
Netfang: sjodir@bhm.is