Öflug persónuvernd er félaginu kappsmál og leggjum við mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma, sem og í samræmi við bestu venjur.
Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Stéttarfélag lögfræðinga, kt. 521081-0239, Borgartúni 27, stendur að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“). Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga um félagsmenn og einstaklinga sem heimsækja vefsíðu félagsins, www.stettarfelaglogfraedinga.is, eða skrá sig á póstlista stéttarfélagsins, hvort sem upplýsingarnar eru geymdar rafrænt, á pappír eða með öðrum hætti. Þar með talin er vinnsla gagna í tengslum við eftirfarandi sjóði BHM; Orlofssjóð BHM (OBHM), Styrktarsjóð BHM (STBHM), Sjúkrasjóð BHM (SKBHM), Starfsþróunarsetur háskólamanna (STH), Starfsmenntunarsjóð (STRÍB).
Stéttarfélag lögfræðinga vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Persónuverndaryfirlýsing félagsins er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til.
Stéttarfélag lögfræðinga safnar, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum
Stéttarfélag lögfræðinga safnar einnig, eins og við á, eftirfarandi persónuupplýsingum sem gætu flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar
Frá hverjum safnar Stéttarfélag lögfræðinga þínum persónuupplýsingum?
Við söfnum persónuupplýsingum frá þér og í vissum tilvikum frá utanaðkomandi aðilum á borð við atvinnurekendur og stjórnvöld. Félagið safnar í engum tilvikum persónuupplýsingum um börn.
Stéttarfélag lögfræðinga leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Félagið vinnur persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.
Stéttarfélag lögfræðinga vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að

Þegar þú notar vef félagsins er engum persónugreinanlegum upplýsingum safnað um notkun þína.
Umferð um vefinn er mæld með þjónustu Plausible sem byggir ekki á langlífum vefkökum eða öðru sem hægt væri að nota til að kortleggja notkunarmynstur einstakra notenda. Þannig er einungis safnað upplýsingum um hversu oft einstaka síður eru skoðaðar og hversu lengi.
Stéttarfélag lögfræðinga safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:
Stéttarfélag lögfræðinga geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.
Stéttarfélag lögfræðinga selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Félagið miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðja aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu félagsins til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um:
Teljist aðili sem félagið miðlar persónuupplýsingum til vera vinnsluaðili gerir félagið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Vinnslusamningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum öruggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. Stéttarfélag lögfræðinga deilir einnig persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins eins og við innheimtu á vanskilakröfu.
Í þeim tilvikum þar sem málum einstakra félagsmanna er deilt með þriðja aðila er slíkt alltaf gert með upplýstu samþykki viðkomandi félagsmanns, enda sé um að ræða sérstakt mál sem varðar hann.
Persónuverndaryfirlýsingin nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðja aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft.
Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er félaginu mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi.
Hér viljum við þó vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu félagsins teljast opinberar upplýsingar og ekki á forræði félagsins þar sem félagið hefur enga stjórn á slíkum upplýsingum né ber ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar.
Við hvetjum þig einnig til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila, Facebook, Google og Microsoft. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar er mögulegt að Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.
Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að
Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á personuverndarfulltrui@bhm.is. Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.
Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra.

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við persónuverndarfulltrúa BHM sem fer með málið fyrir hönd Stéttarfélags lögfræðinga í gegnum netfangið personuverndarfulltrui@bhm.is eða senda inn fyrirspurn til okkar.