Félagsaðild er heimil þeim launþegum sem lokið hafa háskólaprófi í lögfræði frá viðurkenndum háskóla. Félagsfólk sem greiðir félagsgjald telst fullgilt félagsfólk. Félagsfólk þarf að hafa greitt félagsgjald samfellt þrjá síðustu mánuði fyrir boðaðan aðalfund til að hafa þar kjörgengi til embætta og atkvæðisrétt. Sé aðildarumsókn samþykkt öðlast hún gildi þegar félagsgjöld hafa verið greidd.
Háskólanemum sem stunda nám í lögfræði frá viðurkenndum háskóla og greiða félagsgjald af launum á námstíma er heimil full aðild að félaginu og sjóðum tengdum því, að undanskildu kjörgengi til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa. Hver háskólanemi á rétt á aðild að félaginu í samtals fimm ár.
Háskólanemum í lögfræði stendur einnig til boða félagsaðild með takmörkuðum réttindum og skyldum. Nefnast þeir þá ungfélagar og greiða ekki félagsgjöld. Ungfélagaaðild veitir rétt til þátttöku í starfi Stéttarfélags lögfræðinga, málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum en þó ekki atkvæðisrétt eða kjörgengi. Ungfélagaaðild öðlast gildi þegar hún hefur verið samþykkt
Svona sækir þú um aðild
Fylltu út eyðublaðið hér að neðan. Reitir merktir með * eru skyldureitir.
Með umsókninni skal fylgja staðfesting á námslokum eða staðfesting á námi frá viðurkenndum háskóla. Hengdu viðeigandi staðfestingu við umsóknina undir „Fylgiskjöl“. Upplýsingar um leyfilegar skráartegundir og hámarksstærð fylgiskjala eru við skjalaupphleðsluna.
Þú getur bætt við upplýsingum sem varða umsóknina í reitinn „Viðbótarupplýsingar vegna umsóknar“.
Til þess að sækja um aðild þá fyllir þú formið hér að neðan út og óskar svo eftir því við vinnuveitanda þinn að greitt sé fyrir þig í félagið.