Aðild að Stéttarfélagi lögfræðinga opnar á fjárhagslega aðstoð vegna heilbrigðisþjónustu eða langvarandi fjarveru frá vinnu vegna veikinda. Sjúkra- og styrktarsjóðir greiða fyrir sérfræðiráðgjöf og útlagðan kostnað. Styrktarsjóður BHM er fyrir félagsmenn sem starfa á opinberum vinnumarkaði og Sjúkrasjóður BHM er fyrir félagsmenn sem starfa á almennum vinnumarkaði.
Rétt í Styrktarsjóð eiga þeir sem greitt hefur verið fyrir styrktarsjóðsframlag í samtals 6 mánuði þar af 3 samfellda.
Sjóðurinn veitir styrki til félagsmanna vegna tekjutaps vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu sökum veikinda og slysa. Þá veitir sjóðurinn einnig styrki vegna endurhæfingar og forvarna af ýmsum toga. Auk þess koma styrkir sjóðsins til móts við útgjöld vegna andláts sjóðfélaga.
Sjóðurinn greiðir sjóðfélögum sjúkradagpeninga vegna tímabundins tekjutaps sjóðfélaga sökum óvinnufærni sökum veikinda eða slysa.
Sótt er um styrki rafrænt á Mínum síðum BHM. Þar velur þú viðeigandi styrk og skilar umsókn ásamt fylgigögnum.
Gögn sem þurfa að fylgja fara eftir tegund styrks. Vegna útlagðs kostnaðar þarf að jafnaði sundurliðaðan reikning á nafni umsækjanda og staðfestingu á greiðslu. Nánari upplýsingar um fylgigögn og skilyrði eru á Mínum síðum og í úthlutunarreglum sjóðsins.
Starfsmenn Þjónustuvers sjóða BHM veita upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr Styrktarsjóði.
Sími: 595 5100
Netfang: sjodir@bhm.is
Rétt í Sjúkrasjóði BHM eiga þeir sem greitt hefur verið fyrir sjúkrasjóðsframlag í samtals 6 mánuði, þar af samfellda 3 mánuði áður en atburður sem leiðir til styrkumsóknar átti sér stað.
Sjóðurinn veitir styrki til félagsmanna vegna tekjutaps vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu sökum veikinda og slysa. Þá veitir sjóðurinn einnig styrki vegna endurhæfingar og forvarna af ýmsum toga. Auk þess koma styrkir sjóðsins til móts við útgjöld vegna andláts sjóðfélaga.
Sótt er um styrki rafrænt á Mínum síðum BHM. Þar velur þú viðeigandi styrk og skilar umsókn ásamt fylgigögnum.
Gögn sem þurfa að fylgja fara eftir tegund styrks. Vegna útlagðs kostnaðar þarf að jafnaði sundurliðaðan reikning á nafni umsækjanda og staðfestingu á greiðslu. Nánari upplýsingar um fylgigögn og skilyrði eru á Mínum síðum og í úthlutunarreglum sjóðsins.
Starfsmenn Þjónustuvers sjóða BHM veita upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr Sjúkrasjóði.
Sími: 595 5100
Netfang: sjodir@bhm.is